Færsluflokkur: Bækur

Til varnar bangsapabba

Bangsapabbi varð fyrir ósanngjarnri gagnrýni í fjölmiðlum í dag. Feministi segir að

það skírskoti til raunveruleikans hvernig Bangsapabbi njóti mikillar lýðhylli án þess að hafa nokkuð til þess unnið annað en að vera karlkyns og kominn yfir miðjan aldur.

Þetta er ekki rétt.

Þótt það komi ekki fram í leikverkinu þá gegndi Bangsapabbi fjölmörgum trúnaðarstöðum í Hálsakógi um árabil áður en sagan gerist sem sagt er frá í leikritinu. Hann var í mörg ár formaður sóknarnefndar, sat einnig í kjörstjórn í Hálsaskógarkjördæmi, var á yngri árum virkur í Hjálparsveit bjarna, sat í hreppsnefnd, í stjórn Skógræktarfélagsins, var formaður Samtaka berklasjúkra Bjarndýra SBSB, og svo mætti lengi telja.

Það er því rangt að álykta sem svo að Bangsapabbi hafi verið í leiðtogahlutverki í Hálsaskógi BARA af því hann var karlkyns og kominn yfir miðjan aldur.


Um bloggið

Pælingar

Höfundur

Skeggi Skaftason
Skeggi Skaftason
Frjálslyndur og fróðleiksþyrstur lífsspekingur.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • vulture-man
  • hetjur
  • dracula
  • Screen shot 2013-09-22 at 3.47.46 PM
  • Screen shot 2013-09-22 at 3.38.15 PM

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband